Careflux Logo
Innskrá með rafrænum skilríkjum
Development mode - Use dev login form
Með því að skrá þig inn samþykkir þú skilmála fyrir notkun Skríbunnar
Skilmálar og persónuverndarstefna

Skilmálar fyrir notkun Skríbunnar

Þessi skilmálar um notkun ("Skilmálar") gilda um aðgang þinn að og notkun á hugbúnaðarþjónusta sem hljóðritar og býr til sjálfvirkar samantektir á klínískum viðtölum og er veitt af Careflux ehf., kt. 490224-1140, að Menntavegi 1, 102 Reykjavík, sem og öllum tilheyrandi þjónustum og kerfum sem saman kallast „Skríban" eða „þjónustan".

Með því að nota þjónustuna samþykkir þú þessa skilmála og skuldbindur þig til að fylgja þeim.

1. Markmið þjónustunnar

Skríban er hugbúnaður sem tekur upp samtal heilbrigðisstafsfólks og skjólstæðinga og býr sjálfvirkt til samantektir og nótur byggt á því. Skríban er einnig notuð beint af heilbrigðisstarfsmanni án skjólstæðings til að rita samantekt fyrir eða eftir samtal við skjólstæðing. Þetta gerir heilbrigðisstarfsfólki kleift að einbeita sér betur að skjólstæðingum sínum þegar þeir eru í viðtali en ella. Skríban samanstendur af: (1) gátt í vafra þar sem heilbrigðisstarfsfólk skráir sig inn með öruggum hætti; og (2) hugbúnaði sem notar gervigreindarlíkön til þess að greina efni og innihald samtalana með sjálfvirkum hætti, þ.e. hljóðritar textann og býr til samatektir sem heilbrigðisstarfsmaður les yfir, samþykkir eða breytir eftir þörfum.

Þessir notendaskilmálar eiga við um heilbrigðisstarfsfólk sem notar þessa þjónustu til þess að fá hjóðritun, úrvinnslu og samantekt á samtölum við skjólstæðinga.

Þjónustan tengist sjúkraskrám með viðurkenndum og öruggum hætti, þar sem vistun gagna fer fram samkvæmt gildandi lögum.

Þjónustan kemur ekki í stað læknisfræðilegrar greiningar eða ráðgjafar.

2. Skilyrði fyrir notkun
2.1. Aldur og hæfi

Þjónustan er ætluð heilbrigðisstarfsfólki sem er 18 ára og eldri og starfar hjá viðurkenndum heilbrigðisþjónustuveitanda.

2.2. Auðkenning og aðgangur

Aðgangur að þjónustunni krefst rafrænnar auðkenningar með rafrænum skilríkjum í samræmi við kröfur þess heilbrigðisveitanda þar sem heilbrigðisstarfsmaðurinn starfar. Slík auðkenning er forsenda þess að tryggja öryggi og lögmæti gagnameðferðar.

2.3. Réttmæti notkunar

Með því að nota þjónustuna staðfestir þú að:

  • Þú sért sá einstaklingur sem þú gefur þig út fyrir að vera.
  • Þú notir þjónustuna eingöngu í lögmætum tilgangi og innan þess ramma sem þjónustan er hönnuð fyrir.
2.4. Breytingar á aðgengi

Careflux áskilur sér rétt til að:

  • Takmarka eða loka fyrir aðgang að þjónustunni tímabundið eða varanlega og án fyrirvara, ef grunur leikur á brotum á skilmálum, misnotkun, rangfærslum eða ólögmætri hegðun.
  • Veita eða afturkalla aðgang að þjónustunni að beiðni heilbrigðisveitanda sem notar hana.
2.5. Tæknilegar kröfur

Til þess að nota þjónustuna þarf heilbrigðisstarfsmaður að hafa rafræn skilríki, hljóðnema, aðgang að nettengdri tölvu- eða farsímatæki og nýta vefvafra sem styður öryggisstaðla þjónustunnar. Notandi ber ábyrgð á að tryggja að búnaður og nettenging uppfylli þessi skilyrði.

3. Notkun þjónustunnar
3.1. Tilgangur þjónustunnar

Þjónustan er vettvangur fyrir samskipti einstaklinga og heilbrigðisstarfsfólks þar sem hægt er að taka upp samtöl og fá samantektir á öruggan hátt.

3.2. Aðföng þjónustunnar

Þjónustan tekur tekur upp samtöl eða dikteringu, vinnur sjálfvirkt úr innihaldi þeirra og myndar svo samantektir fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Heilbrigðisstarfsmaður yfirfer þessi gögn og ber ábyrgð á endanlegri ákvörðun og úrvinnslu.

3.3. Óheimil notkun

Óheimilt er að:

  • Breyta samantektum með hætti sem er villandi, ósæmilegt eða ólöglegt.
  • Nota þjónustuna til að skaða, ógna, áreita eða blekkja aðra.
  • Senda efni sem brýtur gegn lögum eða réttindum þriðja aðila, s.s. höfundarétti, friðhelgi eða persónuvernd.
  • Nota þjónustuna í vélrænum tilgangi eða í gegnum forrit sem hermir eftir manneskju.
  • Nota þjónustuna til þess að vinna úr samtölum sem gefa til kynna neyðartilvik. Í slíkum tilfellum skal benda viðkomandi að hringja í 112 og bregðast skjótt við með þeim hætti sem mögulegt er hverju sinni.
3.4. Afgreiðsla erinda

Starfsfólk Careflux skoðar ekki innihald upptakanna og ber ekki ábyrgð á því hvenær eða hvernig heilbrigðisstarfsfólk vinnur úr þeim. Notkun og úrvinnsla getur ráðist af reglum og verkferlum viðkomandi heilbrigðisstofnunar.

3.5. Upplýsingagjöf og ábyrgð notanda

Heilbrigðisstarfsfólk sem notar þjónustuna ber ábyrgð á að veita réttar og skýrar upplýsingar. Ef notandi veitir rangar upplýsingar getur það haft áhrif á úrvinnslu samtalanna, valdið villum og töfum eða skaða.

Heilbrigðisstarfsfólk sem notar Skríbuna til dikteringar og hefur hakað í "Skrá án persónugreinanlegra upplýsinga" ber að sleppa personugreinanlegum atriðum í dikteringunni. Þetta á helst við um fullt nafn viðkomandi, kennitölu, heimilisfang, nákvæma starfsstöð.

Skríban notar gervigreindarlíkan sem getur gert villur. Við undirritun á þessum skilmálum samþykkir þú að það sé á þinni ábyrgð sem heilbrigðisstarfsmaður að lesa yfir og yfirfara þær upplýsingar sem Skríban leggur til áður en þær eru unnar frekar.

4. Persónuvernd og gagnaöryggi
4.1. Meðferð persónuupplýsinga

Careflux vinnur persónuupplýsingar í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 og reglugerð (ESB) 2016/679 (GDPR). Upplýsingar sem notendur senda í gegnum þjónustuna geta talist viðkvæmar persónuupplýsingar, til dæmis upplýsingar um heilsufar, og eru meðhöndlaðar samkvæmt ströngustu öryggisstöðlum.

4.2. Hlutverk og ábyrgð

Careflux starfar sem vinnsluaðili fyrir hönd viðkomandi heilbrigðisstofnunar eða þjónustuveitanda, sem ber ábyrgð á upplýsingunum sem ábyrgðaraðili. Öll vistun og meðferð gagna fer fram í umboði og samkvæmt leiðbeiningum viðkomandi heilbrigðisveitanda.

4.3. Flutningur gagna

Gögn sem send eru með Skríbunni eru dulkóðuð í flutningi og vistuð í samræmi við öryggiskröfur í skýjalausnum og/eða hjá viðkomandi heilbrigðisþjónustuveitanda. Careflux flytur ekki gögn til þriðja aðila nema með skýru samþykki, lögboðinni skyldu eða samningi við ábyrgðaraðila.

4.4. Réttindi þín sem skráðs aðila

Sem heilbrigðisstarfsmaður og notandi Skríbunnar hefur þú ákveðin réttindi samkvæmt lögum:

  • Rétt á aðgangi að söfnuðum upplýsingum.
  • Rétt til leiðréttingar á röngum upplýsingum.
  • Rétt til takmörkunar á vinnslu og að andmæla vinnslu.
  • Rétt til eyðingar á eigin gögnum.
  • Rétt til þess að draga þitt samþykki til baka.
  • Rétt til þess að leggja fram kvörtun til Persónuverndar.

Slíkum beiðnum skal beina til viðkomandi heilbrigðisþjónustuveitanda sem ber ábyrgð á meðferð upplýsinganna eða til persónuverndarfulltrúa Careflux í hello@careflux.ai.

4.5. Öryggisráðstafanir

Skríban beitir tæknilegum og skipulagslegum öryggisráðstöfunum til að vernda gögn gegn óheimilum aðgangi, glötun, eyðingu, eða óheimilli notkun. Þetta felur m.a. í sér dulkóðun, aðgangsstýringu, öryggisprófanir og reglulegt öryggiseftirlit.

5. Ábyrgð Careflux
5.1. Tækniþjónustuveitandi

Careflux veitir eingöngu tæknilega lausn með þjónustunni. Careflux veitir ekki læknisfræðilega eða heilbrigðisþjónustu, ráðgjöf, greiningu eða meðferð, og ber enga ábyrgð á læknisfræðilegum ákvörðunum sem teknar eru með stuðningi þjónustunnar.

5.2. Ábyrgð á efni og úrvinnslu

Allt efni sem sent er í gegnum þjónustuna og allar ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli þeirra eru á ábyrgð notandans eða þess heilbrigðisstarfsmanns sem tekur upp eða vinnur úr upptökunum. Careflux ber enga ábyrgð á að upplýsingarnar hafi gildi, séu réttar eða heilar né á þeirri úrvinnslu sem fer fram af hálfu heilbrigðisstarfsfólks.

5.3. Takmörkun ábyrgðar

Careflux ber ekki ábyrgð á:

  • Ónákvæmum upplýsingum frá heilbrigðisstarfsfólki eða þriðja aðila.
  • Tímabundnu eða varanlegu láti á þjónustu heilbrigðisstofnana.
  • Skaða sem hlýst vegna vanhæfni til þess að nota þjónustuna.
  • Tæknilegum bilunum, nettruflunum, eða hugbúnaðarvillum hjá þriðja aðila.
5.4. Ábyrgð heilbrigðisstarfsmanns sem notanda

Notandi ber ábyrgð á:

  • Réttleika og gildi þeirra upplýsinga sem hann veitir.
  • Að nota þjónustuna í samræmi við lög, reglur og skilmála.
  • Að vernda aðgangsupplýsingar og tilkynna um grunsamlega eða óheimila notkun.
  • Að lesa yfir og yfirfara þær upplýsingar sem Skríban leggur til áður en þær eru unnar frekar.
5.5. Undanþága frá skaðabótaskyldu

Careflux ber ekki skaðabótaskyldu gagnvart heilbrigðisþjónustuveitandanum og starfsfólki sem tekur upp eða vinnur úr samtölum nema sýnt sé fram á stórfellt gáleysi við útfærslu öryggisatriða hugbúnaðarins. Í öllum tilvikum takmarkast skaðabótaábyrgð Careflux við þá fjárhæð sem samsvarar beinu tjóni og að hámarki einu ári af þjónustugjaldi, ef við á.

6. Breytingar á skilmálum
6.1. Réttur til breytinga

Careflux áskilur sér rétt til að breyta, bæta við eða fjarlægja ákvæði í þessum skilmálum hvenær sem er, að hluta eða í heild, ef nauðsyn krefur vegna lagabreytinga, tæknilegra breytinga á þjónustunni, eða annarra málefnalegra ástæðna.

6.2. Birting og tilkynning

Allar breytingar á skilmálunum verða birtar á heimasíðu þjónustunnar eða innan notendaviðmótsins. Í tilvikum þar sem breytingar eru verulegar, verður tilkynning send með tölvupósti eða öðrum hætti sem Careflux telur viðeigandi. Notandi getur ávallt nálgast gildandi skilmála á vefsíðu Careflux og í notendaviðmóti.

6.3. Gildistaka breytinga

Breytingar á skilmálum taka gildi við birtingu þeirra, nema annað sé sérstaklega tekið fram. Með áframhaldandi notkun á þjónustunni eftir slíkar breytingar lýsir þú yfir samþykki þínu fyrir uppfærðum skilmálum.

6.4. Hafi notandi athugasemdir

Ef þú ert ósammála uppfærðum skilmálum getur þú hætt notkun þjónustunnar. Notkun þjónustunnar eftir gildistöku breytinga jafngildir samþykki þeirra.

7. Lög og úrlausn ágreinings
7.1. Gildandi lög

Þessir skilmálar og öll notkun þín á þjónustunni lúta íslenskum lögum.

7.2. Varnarþing og meðferð ágreinings

Rísi ágreiningur milli þín og Careflux um skilmálana eða þjónustuna almennt, skal leitast við að leysa slíkan ágreining með samkomulagi. Takist það ekki innan sanngjarns frests, skal mál höfðað fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, nema lög kveði á um annað.

7.3. Ógild ákvæði

Ef eitthvert ákvæði þessara skilmála reynist ólögmætt, ógilt eða óframkvæmanlegt, hefur það ekki áhrif á gildi eða framfylgni annarra ákvæða. Slíkt ákvæði skal skýrt, eftir því sem mögulegt er, í samræmi við upphaflegan tilgang þess.

Ef þú hefur spurningar varðandi þessa skilmála, hafðu samband við:

Careflux ehf.

hello@careflux.ai

Síðast uppfært: 10. júlí 2025